þriðjudagur, maí 09, 2006

http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1200449 Hvernig tilfinning ætli það sé að hafa lært einhverja listgrein, verða frægur, ríkur og vinsæll og uppgötva síðan að aðdáendur manns eru fábjánar. Þetta hefst upp úr því að helga afþreyingarefni hæfileikum sínum. Annars hef ég ekki hugmynd um hvort þessi kona kann nokkuð að leika og eflaust er hún bara hæstánægð enda moldrík. En mér þætti aumt ef mínir örfáu lesendur væru vangefnir.

16 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Eru sögurnar þínar eitthvað annað en afþreyingarefni?

1:43 e.h., maí 09, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Afþreyingarefni var ekki heppilegt orðalag í þessari færslu.

1:51 e.h., maí 09, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú þykist vera eitthvað meira en bara lítt þekktur rithöfundur sem skrifar afþreyingarefni.

Eru sögur þínar stórkostlegar heimspekilegar bókmenntir, sögur sem skipta máli?

2:06 e.h., maí 09, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

höhömm, hefur þér fundist eitthvað benda til þess hér á blogginu að lesendur þínir séu ekki vangefnir?

2:27 e.h., maí 09, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Leiðinlegt þegar menn eru með fordóma gagnvart fötluðu fólki.

2:37 e.h., maí 09, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

... aðdáendur manns ...

Mæli með því að þú hættir að orða þetta svona. Þetta orðalag bendir til þess að sá sem skrifar sé hégómalegur úr hófi. Fegurðardrottningar sjá sjálfar sig svona - með augum annarra. Það er ekki með nokkru móti hægt að bera virðingu fyrir hégómalegu fólki.

7:32 e.h., maí 09, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Sarah Jessica Parker á aðdáendur -
ég á lesendur.

Og ég er að tala um lesendur bókanna, ég læt þá sem ramba inn á bloggsíðuna liggja á milli hluta og misjafnt gáfnafar þeirra sem líklega spannar allan skalann.

7:40 e.h., maí 09, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Er þetta ekki svipað og með auglýsingarnar sem þú hefur lifibrauð þitt af?
Þær virka bara ef þær vekja athygli þessara sömu fábjána.

12:10 f.h., maí 10, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Áttu aðdáendur?

Aðhlægjendur væri nærri lagi, og mundu að ekki eru allir aðhlægjendur eignir.

12:25 f.h., maí 10, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Ertu ekki læs, Fannarr? Ef svo er fáðu þá einhvern til að lesa kommentið mitt hér að ofan fyrir þig.

1:17 f.h., maí 10, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Er læs ég var að spyrja þig hvort þú ættir aðdáendur, ekki ég sem á bágt með lestur.

Hraundrangi úr kristalsglasi þar sem þú getur ekki valið saman tvö orð öðruvísi en að skaða þau bæði.

3:13 f.h., maí 10, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Nú hlýtur það að vera ég sem á erfitt með lestur því ég á mjög erfitt með að botna í þessu kommenti. En eins og ég var að benda þér á áðan var ég búinn að skrifa í kommenti rétt hér að ofan að ég ætti lesendur en stjörnuleikkona á borð við Söru Jessciu ætti aðdáendur. Það var því algjör óþarfi að spyrja mig þessarar spurningar og hvað þá að leggja út af ímynduðu já-svari mínu við henni - Mér virðist þú annars hafa alveg siglt í strand með þetta skítkast þitt.

3:24 f.h., maí 10, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég mun kaupa ljóðabók þína "Strandsigling skítskastsins"

Kveðja, F

5:02 e.h., maí 10, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Ég skrifa ekki ljóð. Þú veist greinilega álíka mikið um mig og ég veit um þig. Semsagt: ekkert. Skil ekki hvað þú ert að gera hérna.

5:04 e.h., maí 10, 2006  
Blogger oakleyses said...

p90x workout, asics shoes, reebok shoes, canada goose outlet, instyler ionic styler, longchamp, north face jackets, uggs on sale, giuseppe zanotti, hollister, abercrombie and fitch, mont blanc pens, babyliss, lululemon outlet, marc jacobs outlet, north face jackets, canada goose outlet, mcm handbags, nike trainers, ugg outlet, ugg, ugg boots, nike roshe, replica watches, ghd, valentino shoes, uggs outlet, birkin bag, nfl jerseys, jimmy choo shoes, soccer shoes, ugg boots, canada goose, nike huarache, beats headphones, insanity workout, canada goose outlet, new balance outlet, ugg soldes, ferragamo shoes, uggs outlet, soccer jerseys, mac cosmetics, herve leger, celine handbags, wedding dresses, vans outlet, chi flat iron, bottega veneta

1:56 f.h., desember 01, 2014  
Blogger Unknown said...

zzzzz2018.7.4
louboutin shoes
jordan shoes
coach outlet
ray ban sunglasses
canada goose jackets
michael kors outlet
kate spade outlet online
longchamp handbags
ralph lauren outlet
converse shoes

3:10 f.h., júlí 04, 2018  

Skrifa ummæli

<< Home