fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Í vikunni mætti ég í vinnuna með nýtt blátt bindi úr Hagkaupum um hálsinn. Vinnufélögum þótti bindið minna á Sjálfstæðisflokkinn og sögðu að ég ætti að vera í framboði í prófkjörinu sem er framundan um helgina. Ég sagði að það gæti ég ekki því ég gæti ekki rætt um skipulagsmál þar sem ég vissi ekki hvað það væri að leggja götu í stokk. - Þeir sögðu að ég ætti þá bara að halda mig við önnur umræðuefni.

Það hefur reyndar verið hringt nokkuð í mig til að smala. Málið er nokkuð einfalt: Ég hef meiri trú á Vilhjálmi í efsta sætið og kýs hann. Síðan er mikilvægt að nóg verði af kvenfólki í efstu sætum. Að öðru leyti ræður fáfræðin för. Mér líst t.d. vel á að kjósa Kjartan Magnússon af því sonur minn heitir Kjartan. Það er svona dæmi um pólitíska vitund mína í borgarmálum.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst það mjög aðdáunarvert að þú viðurkennir hvernig þú tekur pólitískar ákvarðanir. Það er ákaflega pínlegt að lesa fólk reyna að réttlæta skoðanir sem eru í grunninn þær að fólki er vel við (svo dæmi sé tekið) Steingrím Joð af því að hann sé sköllóttur og þeim finnist fólk með hár alltaf vera að fela eitthvað.

(Þetta með að fólk með hár sé alltaf að fela eitthvað er stolið úr Höfundi Íslands)

7:55 f.h., nóvember 03, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Kannski ætti ég að nota persónulegt dæmi: Mér hefur alltaf verið frekar vel við Halldór Ásgrímsson af því að hann minnir mig á mjög skemmtilegan frænda minn.

11:14 f.h., nóvember 03, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig fer smölun fram?

8:40 f.h., nóvember 04, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Það er hringt í mann og það er sms-að mann.

2:59 f.h., nóvember 05, 2005  
Blogger oakleyses said...

birkin bag, ferragamo shoes, ugg, reebok shoes, asics shoes, insanity workout, hollister, giuseppe zanotti, chi flat iron, soccer jerseys, herve leger, jimmy choo shoes, uggs outlet, new balance outlet, replica watches, lululemon outlet, nike huarache, north face jackets, ugg boots, p90x workout, longchamp, canada goose outlet, uggs on sale, abercrombie and fitch, beats headphones, wedding dresses, vans outlet, valentino shoes, mac cosmetics, canada goose outlet, canada goose, uggs outlet, celine handbags, soccer shoes, nike roshe, mcm handbags, marc jacobs outlet, bottega veneta, mont blanc pens, ugg outlet, canada goose outlet, nfl jerseys, ugg soldes, babyliss pro, ghd, nike trainers, north face outlet, ugg boots, instyler ionic styler

4:18 f.h., nóvember 29, 2014  
Blogger oakleyses said...

uggs canada, louis vuitton canada, wedding dress, moncler outlet, vans, toms outlet, moncler, oakley, moncler, coach outlet, lancel, moncler, supra shoes, hollister clothing, pandora uk, montre femme, ray ban, ralph lauren, canada goose, canada goose, pandora charms, pandora jewelry, juicy couture outlet, parajumpers outlet, baseball bats, iphone 6 case, thomas sabo uk, canada goose pas cher, hollister, juicy couture outlet, converse, ugg, converse shoes, replica watches, moncler, canada goose, air max, nike air max, gucci, links of london uk, moncler outlet, louboutin, swarovski jewelry, swarovski uk, moncler, timberland shoes, hollister canada, karen millen

4:28 f.h., nóvember 29, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home