http://www.djoflaeyjan.com/gamalt/2005/02/meistaraverki_e.php Í þessari athyglisverðu grein er velt upp þeirri spurningu hvort Jón Gnarr sé að framkvæma hinn fullkomna brandara með trúarbullinu í sér (sérstaklega í Bakþönkum Fréttablaðsins) og er leitað líkinga við Andy Kaufman eins og hann birtist okkur í Man on the Moon.
Bloggsíða Ágústs Borgþórs
Smápistlar um bókmenntir, daglegt líf og fleira.

8 Comments:
Vá maður.
Það er rétt, þetta er mjög athyglisverð grein.
Og ótengt meginviðfanginu gladdi mitt litla hjarta að sjá loksins tillögu að sómasamlegri þýðingu á "punchline."
Þetta er greinilega góður penni.
Ekki held ég að þetta sé grín hjá hinum aprauðhærða spéfugli Jóni. Skauphöggslaust eður ei. Held hann sé bara maður sem þorir að vera öðruvísi trúpersóna en flestir þeir sem hana bera hér á landi. Hann er ekki bundinn við að drjúpa fingrum á gítar, eða standa með skegg innanum misháa trúbærður sína. Hann er hinn óvenjulegi trúboði, sem ungir aðdáendur hans (7-14 ára) gætu tekið mark á. Það sem hann á síðan sjálfsagt eftir að gera er að skrá sig í Ásatrúarfélagið og hefja nám í Guðfræði. Þetta tvennt þarf ekki að stangast á, en myndi gera hann forvitnilegri fyrir fjölmiðla, og svoleiðis gargan. Og hann er, pókersmettaður eður ei, mikið fyrir athyglina þegar myndavél eða hljóðnema er beint að honum, - þó hvundagspersóna hans sé það sjálfsagt ekki. Að þetta sé Tunglkarlsgrín held ég sé frekar ósennilegt. Kannski aðeins leit og fundur pennaljómans á Djöflaeyjunni á efni til að skrifa um, svona til að unga út einum texta um fyndinn karl. Og þar með geta verið dálítið hnyttinn í sömu mund.
Ég er sammála því að tilgátan virkar ekki mjög líkleg en hins vegar er hún mjög snjöll sem hugmynd og síðan er vel unnið úr hugmyndinni í textanum.
Eigi skulu þér hlæja svo að þér verðið eigi aðhlátursefni. Því að með hverjum hlátri þér hlæið, munu þér að aðhlátursefni verða, og með hverri fyndni þér mælið, mun þér tapast gleðin. En hvað sér þú afkáralegt í fari bróður þíns, og að því afkáralega, sem er í sjálfs þíns fari, gáir þú ekki? Eða hvernig dirfist þú að segja bróður þínum: Bróðir, leyf mér að hlæja að þér? Og sjá, að afkárlegheitin eru þó í sjálfs þíns fari. Þú hræsnari, drag fyrst úr afkárlegum hætti sjálfs þín, og gef þá gætur að, að þú fáir eigi hlegið að bróður þínum. Jafnvel þó hann detti um stein og enniskökkurinn blóðgist. Eigi skulu þér gefa aðhlæjendum hvað fyndið er, og varpið eigi heldur óguðlegu spéi yðar fyrir aðhlæjendur svo að eigi hlæji þeir að þér og að snúist fyndnin og yður í sundur slíti.
(Jeremías 25.23.).
Er sjálfur Jón Gnarr inni á minni síðu? Ég trúi því ekki. Ef þetta er satt þá verð ég að segja krökkunum það.
Nei, JG var léglegt grín hjá mér, HSE. Stóðst ekki mátið að skjóta þessu inn.
Þetta var kannski grín en ekki lélegt grín.
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home