miðvikudagur, október 12, 2005

Nokkrar staðhæfingar úr hugskoti ÁBS, skoðanir og fordómar

Konur eru fallegri en karlar

Börnin mín hafa það gott

Ég verð langlífur

Líf mitt verður oftast tíðindalaust en samt á eitthvað ófyrirsjáanlegt eftir að gerast

Ég get ekki ímyndað mér hvernig nokkur getur haft áhuga á að horfa á heimildarmynd um kvennakór - en samt veit ég að þeir/þær eru til. Eða karlakór ef því er að skipta ...

Ég á eftir að skrifa eitthvað sem ég ætlaði ekki að skrifa en færir mér meiri viðurkenningu en það sem ég vil helst fást við í ritlist. Ég hef ekki hugmynd um hvað það verður.

23 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heimildarkvikmyndinn um Berlevågkorinn (norskur karlakor) slog nu i gegn.

5:29 e.h., október 12, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Já. Ekki fór ég samt á hana.

5:30 e.h., október 12, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Thad er nu annarhver madur i kor a Islandi og vid hin laglausu skrifum smasogur!

5:33 e.h., október 12, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Ég er nú ekki laglaus og alveg kórtækur. En heimildarmynd um slíkt, drottinn minn, svo var sýnt myndskeið í sjónvarpinu þar sem kerlingarnar voru raulandi í rútu. Það fór hrollur um mig.

5:37 e.h., október 12, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er margt verra en að taka þátt í kórstarfi. Til dæmis að frelsast inn í stjórnmálasöfnuð. Hugsaðu þér rútuferð með fólki sem er sameinað af pólitísku ofstæki.

6:30 e.h., október 12, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Eitt er að taka þátt í einhverju. Annað er að gera heimildarkvikmynd um það og sýna á almennum sýningum.

6:33 e.h., október 12, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Verða þetta einhver ósjálfráð skrif sem þú verður verðlaunaður fyrir? Kannski þú farir að miðla öðrum höfundum, skrifir nýjar bækur Þórbergs, eða Tsjékovs, ha?

10:14 e.h., október 12, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Talandi um skrif þá er ég mikið að hugsa um að skrifa sögu um fertuga konu sem verður ástfanginn af lögfræðingi á Manhattan en missir áhugan á henni er hann kemst að því að hún er af gyðingaættum. Bókin gæti heitir "Jewish attraction" eða "Roses over Lexington"... og væri bókin skrifuð mikið útfrá tilfinningum konunnar. - annars er þetta bara svona almenn hugdetta!

12:07 f.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ef þú heldur áfram að skrifa af sömu staðfestu og hingað til muntu ná í gegn. Það er ekki verra en að slá í gegn. Raunveruleg frægð kemur þegar menn verðskulda hana, ekki þegar kallað er eftir henni.

1:04 f.h., október 13, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Hún getur komið þó að menn verðskuldi hana og hún þarf ekki að koma þó að menn verðskuldi hana. Svona speki er yfirleitt allt of mikil einföldun fyrir okkar flóknu tilveru.

1:05 f.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Það kann vel að vera að spekin sé ekki mikil, en mér finnst margir hafa tilhneigingu til að festa augun í flækjuhnoðrum í staðinn fyrir að sjá víðáttur einfaldleikans í kringum þær.

1:24 f.h., október 13, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Einföld greining á hlutunum er líka oft ekki verri sannleikur en hver annar. Svo er það líka spurning: Hver verðskuldar frægð, hvað verðskuldar frægð og hversu eftirsótt er hún? Verðskuldar það endilega frægð að vera góður rithöfundur?

1:26 f.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég kann ekki að svara þeirri spurningu. En ég held að raunveruleg frægð komi til allra sem verðskulda hana. Hún kemur að vísu dálítið seint til sumra. Ekki gerði Kafka ráð fyrir þeirri ógnarfrægð sem nú fylgir hans nafni. Í lifanda lífi var hann svona passlega frægur í vinahóp. Hermann Melville var soldið bitur yfir því hversu lengi frægðin lét á sér standa, en þegar hún kom var hún mikil. Og ef maður vill ganga enn þá lengra þá var Jesús Kristur ekki verulega frægur í lifanda lífi. Svo deila menn um hvort frægð sé yfirhöfuð eftirsóknarverð.

1:33 f.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ef fólki finnst frægð ekki eftirsóknarverð á það ekki að gera neitt til að öðlast hana. Leikarar, tónlistarmenn, rithöfundar og aðrir sem hafa öðlast frægð og væla svo yfir því að vera of frægir hefðu bara átt að halda sig heima í bílskúr að glamra á gítar (eða gera hvað sem þeir eru að gera), því þú getur ekki orðið fræg(ur) nema þú gerir eitthvað í því. Enginn verður frægur án þess að reyna það, það er ekki hægt.

11:24 f.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Jújú. Til dæmis Anna Frank.

2:01 e.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

ÚFF!! Úff! Það er vonandi ekki of sterkt til orða tekið yfir svona blaðri. "...þú getur ekki orðið fræg(ur) nema þú gerir eitthvað í því. Enginn verður frægur án þess að reyna það, það er ekki hægt."
Raunveruleg frægð er afleiðing merkilegs starfs; ekki afleiðing frægðarfíknar.

2:07 e.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Andy Warhol hitti naglann á höfuðið
með línum "
It's the place where my prediction from the sixties finally came true: "In the future everyone will be famous for fifteen minutes." I'm bored with that line. I never use it anymore. My new line is, "In fifteen minutes everybody will be famous."

3:29 e.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Þegar þú labbar með skálverkið þitt til útgefanda, með myndina þína í gallerí, með demó til plötufyrirtækis, ferð í áheyrnarprufu, hvað sem er, þá gerirðu þér grein fyrir því að þú gætir orðið frægur. Ef þú getur ekki hugsað þér það, vertu þá bara heima hjá þér. Þetta er ekki flóknara. Og ef þú ert ekki bara heima hjá þér, ekki þá væla yfir því að það sé svo ömurlegt að vera frægur. Ef þú vilt ekki vera frægur þá geturðu alveg sleppt því (fyrir utan fólk sem lendir óvart í leiðinlegu dagblaðaumtali, en það líður yfirleitt mjög fljótt hjá).

Verður frægð til vegna merkilegra verka? Hvernig stendur þá á því að Egill Gillzenegger og Silvía Nótt eru fræg?

5:05 e.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Þau eru ekki fræg. Þau eru bara einnota fjölmiðlatyggjó, bragð vikunnar.

9:23 e.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Silvía Nótt er æði. Fyndin fram í fingurgóma. Tæfulega sexý.

9:43 e.h., október 13, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Anonymous: Er ekki kominn háttatími fyrir FM hnakkana?

10:58 e.h., október 13, 2005  
Blogger oakleyses said...

red bottom shoes, michael kors outlet online, true religion, tiffany and co jewelry, nike air max, oakley sunglasses, ray ban outlet, tory burch outlet online, tiffany jewelry, michael kors outlet, louis vuitton, nike outlet, oakley vault, kate spade outlet online, prada handbags, nike free, longchamp outlet, ray ban sunglasses, nike air max, coach outlet store online, burberry outlet online, christian louboutin, coach outlet, christian louboutin shoes, christian louboutin outlet, louis vuitton handbags, michael kors outlet store, michael kors outlet online, polo ralph lauren, cheap oakley sunglasses, chanel handbags, coach purses, coach outlet, prada outlet, kate spade outlet, polo ralph lauren outlet, burberry outlet online, longchamp handbags, true religion outlet, louis vuitton outlet online, gucci handbags, jordan shoes, longchamp outlet online, michael kors handbags, louis vuitton outlet, michael kors outlet online, louis vuitton outlet

3:48 f.h., nóvember 29, 2014  
Blogger oakleyses said...

birkin bag, ferragamo shoes, ugg, reebok shoes, asics shoes, insanity workout, hollister, giuseppe zanotti, chi flat iron, soccer jerseys, herve leger, jimmy choo shoes, uggs outlet, new balance outlet, replica watches, lululemon outlet, nike huarache, north face jackets, ugg boots, p90x workout, longchamp, canada goose outlet, uggs on sale, abercrombie and fitch, beats headphones, wedding dresses, vans outlet, valentino shoes, mac cosmetics, canada goose outlet, canada goose, uggs outlet, celine handbags, soccer shoes, nike roshe, mcm handbags, marc jacobs outlet, bottega veneta, mont blanc pens, ugg outlet, canada goose outlet, nfl jerseys, ugg soldes, babyliss pro, ghd, nike trainers, north face outlet, ugg boots, instyler ionic styler

4:17 f.h., nóvember 29, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home