þriðjudagur, maí 16, 2006

Það eimir alltaf dálítið eftir af menntaskólasálinni í manni, þ.e. að taka alvarlega það sem stórir rithöfundar segja. Þrennt sem Hallgrímur Helga hefur sagt, beint og óbeint, hefur alltaf vakið mér efasemdir um sjálfan mig sem rithöfund:

1. "Djobb er dauði listamanns." Þessi afstaða, að rithöfundur eigi ekki að gegna föstu starfi, er valid. Það myndi að vísu ekki henta mér að vera full-time rithöfundur en engu að síður var óþægilegt að lesa þessi ummæli hins mikla höfundar.

2. Alvöru bækur eru langar. Stutt smásagnasöfn les maður á 20 mínútum á Súfistanum. Bækurnar mínar eru rúmlega 100 síður en hans 400-600 síður. Það skeður að vísu næstum því alveg jafnmikið í bókunum mínum og hans en það er sagt frá því í færri orðum. En þó að maður mótmæli svona skoðunum jafnvel í heilu greinunum þá læðast efasemdirnar að manni og búa um sig í sálinni.

3. Að rithöfundur eigi alltaf að vera óflokksbundinn. Á tímabili Bláu handar greinarinnar lýsti Hallgrímur þessu yfir í viðtali. Rithöfundur ætti aldrei að styðja einn stjórnmálaflokk, það sæmdi honum ekki og skilyrti í raun málfrelsi hans. Eitthvað þannig. - Sjálfstæðismanninum mér, en jafnframt aðdáanda skáldsagna Hallgríms, var töluvert brugðið við þetta.

Mér var nokkuð létt þegar ég horfði á Silfur Egils um daginn og komst að því að þessum efasemdartilefnum hefur fækkað um eitt: Þriðja fullyrðingin er ekki í gildi lengur. Hallgrímur er nefnilega kominn í Samfylkinguna. Hann er giftur henni, á barn með henni og allt, og hann styður Dag B. Eggertsson til borgarstjóra. Hann segir m.a.s. hommabrandara um Sjálfstæðisflokkinn, að vísu óvenjulega auman á mælikvarða Hallgríms. - Hallgrímur Helgason hefur jafnmikinn rétt og aðrir til að skipta um skoðun og það hefur hann vissulega gert í þessu efni.

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er lítið mark takandi á Grími.

6:58 e.h., maí 16, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Hallgrímur er lipur og leiftrandi penni. Hann tekur öflugan þátt í þjóðmálaumræðunni, menningu og pólitík líkt.

9:42 e.h., maí 16, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Afhverju í dauðanum lítur á Hallgrím sem stóran rithöfund og tekur mark á því sem hann segir? Ef hann er stór rithöfundur, þá eigum við Íslendingar bara agnarsmáa lesendur sem eru snoknir fyrir múrsteinum. Hann hefur aldrei skrifað bók sem heldur saman, þó að 101 hafi haldið gömlu og lúnu partíi gangandi. En guð, ekki líta á hann sem stóran rithöfund, Ágúst. Hann er svona dálítill „besti vinur Cervantes,“ sem var rithöfundur sem var miklu frægari en Cervantes sjálfur og hver man eftir honum núna? Hann ungaði út ég veit ekki hvað mörgum bókum, sem þóttu merkilegar um hans daga, en eru núna notaðar til að sökkva hvalshræjum í Fetlafirði.

12:19 f.h., maí 17, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

það er rétt.

10:25 e.h., maí 17, 2006  
Blogger oakleyses said...

jordan shoes, tory burch outlet online, louis vuitton outlet online, ray ban sunglasses, louis vuitton, louis vuitton handbags, christian louboutin shoes, cheap oakley sunglasses, true religion outlet, michael kors outlet online, oakley sunglasses, michael kors outlet online, burberry outlet online, ray ban outlet, tiffany jewelry, louis vuitton outlet, longchamp outlet, red bottom shoes, coach outlet, kate spade outlet online, kate spade outlet, longchamp handbags, michael kors handbags, michael kors outlet online, burberry outlet online, louis vuitton outlet, polo ralph lauren, michael kors outlet, gucci handbags, longchamp outlet online, nike outlet, true religion, coach outlet, nike air max, coach outlet store online, tiffany and co jewelry, chanel handbags, nike free, christian louboutin outlet, michael kors outlet store, polo ralph lauren outlet, nike air max, christian louboutin, coach purses, prada handbags, oakley vault, prada outlet

1:31 f.h., desember 01, 2014  
Blogger oakleyses said...

p90x workout, asics shoes, reebok shoes, canada goose outlet, instyler ionic styler, longchamp, north face jackets, uggs on sale, giuseppe zanotti, hollister, abercrombie and fitch, mont blanc pens, babyliss, lululemon outlet, marc jacobs outlet, north face jackets, canada goose outlet, mcm handbags, nike trainers, ugg outlet, ugg, ugg boots, nike roshe, replica watches, ghd, valentino shoes, uggs outlet, birkin bag, nfl jerseys, jimmy choo shoes, soccer shoes, ugg boots, canada goose, nike huarache, beats headphones, insanity workout, canada goose outlet, new balance outlet, ugg soldes, ferragamo shoes, uggs outlet, soccer jerseys, mac cosmetics, herve leger, celine handbags, wedding dresses, vans outlet, chi flat iron, bottega veneta

1:56 f.h., desember 01, 2014  
Blogger oakleyses said...

pandora charms, moncler, toms outlet, timberland shoes, ray ban, hollister clothing, swarovski uk, canada goose, montre femme, ralph lauren, converse shoes, ugg, moncler, supra shoes, pandora uk, hollister, links of london uk, swarovski jewelry, uggs canada, baseball bats, gucci, lancel, canada goose, pandora jewelry, wedding dress, juicy couture outlet, moncler, hollister canada, thomas sabo uk, canada goose, iphone 6 case, coach outlet, replica watches, oakley, canada goose pas cher, parajumpers outlet, louboutin, moncler, moncler outlet, air max, karen millen, converse, vans, moncler, moncler outlet, louis vuitton canada, juicy couture outlet, nike air max

2:07 f.h., desember 01, 2014  
Blogger Unknown said...

zzzzz2018.6.12
eagles jerseys
coach outlet online
reebok shoes
coach outlet
jordan shoes
coach outlet online
polo ralph lauren
boston celtics jersey
christian louboutin shoes
air jordan uk

3:35 f.h., júní 12, 2018  
Blogger Unknown said...

zzzzz2018.7.17
converse shoes
christian louboutin outlet
nike chaussure femme
ugg boots uk
off white clothing
jordan shoes
coach outlet
kate spade outlet online
new nike shoes
adidas outlet

4:54 f.h., júlí 17, 2018  
Blogger Unknown said...

in túi giấy giá rẻ Prentun Pappírspokar eru ein af myndunum af litlum tilkostnaðarauglýsingum sem oft eru studdar af fyrirtækjum. Vegna þess að þegar prentaðar eru pappírspokar til að geyma fatnað, snyrtivörur, kynningargjafir. Þeir prenta oft lógóið og nafn fyrirtækisins til markaðssetningar til að kynna myndirnar vegna þess að viðskiptavinir halda þeim oft Falleg pappírspoki sniðmát til að versla eða ferðast síðar. Skilja sálfræði allra. Fatabúnaður tekur oft eftir ímynd fyrirtækisins til viðskiptavina. Þeir fóru svo til prentunarfyrirtækja til að setja í töskur í töskur fyrir fatabúð. Vörur eins og ilmvatn, snyrtivörur, föt, skór osfrv. Þegar sett eru í viðeigandi pappírspoka verða aukin í verðmæti og faglegri.

Að auki eru pappírspokar leið til að hjálpa fyrirtækjum að kynna vörumerki sín mjög vel. Ólíkt bæklingum, catelogue eða bæklingum, ... oft ekki varðveitt af viðskiptavinum, eru pappírspokar venjulega haldið af viðskiptavinum til endurnotkunar. Sérstaklega eru pappírspokarnir fyrir tískuvörur einstök, skapandi og góð prentun.

Þegar pappírspokar eru prentaðir þannig að ef þú vilt leggja áherslu á að auglýsa þarf hönnun hugmyndir að vera skapandi, að fara frá einfaldleika til lúxus verður alltaf vel þegið af væntanlegum viðskiptavinum.

4:55 f.h., febrúar 14, 2019  

Skrifa ummæli

<< Home