laugardagur, mars 10, 2007

http://www.skrudda.is/default.asp?p=1&id=118 Ég er spenntur fyrir þessari bók. Las Umbúðaþjóðfélagið eftir sama höfund fyrir líklega um 17 árum. Það var mjög áhugaverð lesning.

38 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Keypti bollann þinn á Mengellu. Kaffið bragðast nú enn betur.

12:59 f.h., mars 11, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Þetta virðist vera frekar flottur bolli.

1:19 f.h., mars 11, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu ekki búinn að fá þér bolla? Drífa sig! En þetta er greinilega alvöru bók hér á ferð, ekkert rugl.
anonymoussaid

2:10 e.h., mars 11, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvað gerðirðu þessum Mengella?

kv. Bjarki

10:06 e.h., mars 11, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Guðmundur Steingrímsson, Stefán Pálsson, +Ágúst Borgþór Sverrisson, Eyvindur Karlsson, Arngrímur Vídalín - þetta er bara brot af því fólki sem þessi nafnlausi en vel skrifandi bloggari hefur ógurlega lítið álit á. Ég veit ekki hvort það kemur okkur eitthvað við.

10:18 e.h., mars 11, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Og auðvitað kaupi ég engan bolla. Hún/hann á að sjá sóma sinn í að senda mér eitt stykki. Hún veit áreiðanlega hvar á að hafa upp á mér.

10:21 e.h., mars 11, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Allt klassamenn sem þessi fígúra hatar?

10:13 f.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Ég sé ekki betur.

11:24 f.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Hefurðu ekki tilgátu um höfund þessa bloggs?

kv. Bjarki

12:29 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Höfunda í flt. sjálfsagt.

12:58 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta eru aðallega Nýhil og vinir. Tveggja, þriggja ára hangs á Barnalandi og endurholdgun andans undir vefsmiðju Tregawattanna. Stílbragðið felst í víkingseðli og bastarðshroka.

Kveðja frá sterkasta manni í heimi.

1:09 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Mengella said...

Hatur er ekki til í eðli mínu.

Ég reyni að benda á það augljósa í skrifum mínum og hef ekkert skrifað sem ekki er satt.

Skora ég nú á þá sem halda öðru fram að tilfæra dæmi.

Og Kazmaier, ég er ekki í Nýhyl - hef aldrei verið, er kvenkyns og aðeins ein manneskja.

Ágúst, ég skal senda þér bolla ef þú sendir mér handritið þegar bókin kemur út. Skal meira að segja skrifa ritrýni.

1:20 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Er að rabba við góðan, Nýhil-tengdan mann á Kaffitári, sem fullyrðir að þetta sé enginn úr Nýhil. Hann bætti við: "Komdu með gott plott, svælum hann út." - Og það verður gert. - Þetta er karlmaður á miðjum aldri, líklega á aldur við mig eða aðeins eldri.

1:23 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Kazmaier, komdu í sjómann.

Ágúst, þú dæmir.

Ég gef þér einn Meistarabol þegar Kazinn er afgreiddur.

1:38 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Er þetta ekki þykjustumengella? Ef ekki: Ég geng að þessum skilyrðum ef þú lest fyrst smásögur eftir mig. Til dæmis aðra af síðustu tveimur bókum.

1:52 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er Hið öfuga afbrigði məngellu.

2:13 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Hér er plott handa ykkur:

„Æ, þetta var langur dagur!“ sagði Doddi við sjálfan sig, þegar hann var búinn að borða kvöldmat. „Ég er allt of þreyttur til að þvo upp eftir mig. Það verður að bíða til morguns.“
Svo stóð hann á fætur og geispaði mikið, leit á rúmið sitt og raulaði:

       „Elsku bezta bólið mitt
       sem ert svo hlýtt og mjúkt.
       Allt af þegar leggst ég fyrir,
       mér tekst að sofna skjótt.
       Sængina stóru ég yfir mig breiði,
       alveg upp að nefi.
       Og þá sef ég vært og rótt,
       þar til haninn fer að gala.

Svo burstaði hann í sér tennurnar og greiddi sér. Að því búnu fór hann úr jakkanum og þvoði sér um hendur og andlit. Svo settist hann, en varð þá svo syfjaður, að hann sofnaði næstum á stólnum.

Í næsta kafla sjáum við hvernig Doddi litli hrekkur í kút þegar síminn hringir allt í einu og dularfull rödd hinum megin á línunni spyr: „Hefurðu gaman af hryllingsmyndum?“

Kveðja frá Glæpaskáldinu.

2:14 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Af hverju þarf að svæla einhvern út? Er þetta ekki fremur bara krydd í tilveruna? Ég er alger hnakkamengella.

3:26 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Það þarf ekkert að svæla hann út, alveg eins og hann þarf ekkert að vera að skíta út Brynju Björk. En við ætlum samt að gera það.

3:33 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Mengella said...

Ágúst,

Ég hef lesið þig. Og bíð spennt eftir handritinu og svælingarplottinu.

Bollann færðu einhvern daginn, og bústu nú við því.

3:51 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Líst vel á þetta, svældu þau út, þau hafa gott af því.

4:00 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Það vantaði alveg inn í gamla pistillinn þinn um mig útlistingar á því hvers vegna smásögur eins og Hverfa út í heiminn, Fyrsti dagur fjórðu viku, Eftir sumarhúsið og fleiri, væru svona lélegar. En þá hefði hann kannski virkað minna sannfærandi?

4:24 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Mengella said...

Pistillinn var nákvæmlega eins og ég hafði hugsað mér hann, með tilvitnun og allt.

5:01 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Fáðu sæmilegan honeytrap hakker í lið með þér, meistari, það er lítið mál að svæla út IP tölu. Urrdann.

5:10 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Já, Mengella, auðvitað fórstu auðveldustu leiðina til að komast að niðurstöðu sem þú gafst þér í upphafi.

Já, An., ég veit. En ég gef þessu mjög góðan tíma. Þetta gerist öruggglega ekki fyrir sumarið enda liggur ekkert á.

5:13 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Létt að fá að vita hver á IP töluna án dómsúrskurðar.

8:42 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Mengella said...

Síminn á hana. Og stýrikerfið er MacOs X.

En það er ekki nema byrjunin að vita það.

8:57 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

http://www.youtube.com/watch?v=WLJYPIXT1kc

10:39 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Ekki eignarréttur. Heldur hver er á bak við IP töluna. Létt að komast að því.

11:25 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Ég minni síðan menn á tölvupóstinn ef þeir vilja leggja sitt af mörkum. agust@islenska.is

11:31 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég var einmitt að frétta af hreint mergjuðum makka-vírus sem hreinlega rústar þessu MacOs X dæmi öllu og spreðar út um allt og þú getur bara sent fraukunni í litlum tölvupósti ef hún er ekki þæg og góð við litla meistarann sinn.

11:46 e.h., mars 12, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Ég vil ekkert slíkt. Fyrir utan að þetta hljómar ekki trúlega.

11:48 e.h., mars 12, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert nú meiri maðurinn. Ég verð þá víst bara að senda þetta lítilræði fyrir þig ef í harðbakkann slær ;)

12:16 f.h., mars 13, 2007  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Við Mengella erum ekki óvinir. Það er þitt mál hvort þú ert grínari eða glæpamaður.

12:21 f.h., mars 13, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Ljóst er að Glæpaskáldið liggur undir grun.

2:16 f.h., mars 13, 2007  
Anonymous Nafnlaus said...

Doddi liggur undir grun

9:57 f.h., mars 13, 2007  
Blogger oakleyses said...

p90x workout, asics shoes, reebok shoes, canada goose outlet, instyler ionic styler, longchamp, north face jackets, uggs on sale, giuseppe zanotti, hollister, abercrombie and fitch, mont blanc pens, babyliss, lululemon outlet, marc jacobs outlet, north face jackets, canada goose outlet, mcm handbags, nike trainers, ugg outlet, ugg, ugg boots, nike roshe, replica watches, ghd, valentino shoes, uggs outlet, birkin bag, nfl jerseys, jimmy choo shoes, soccer shoes, ugg boots, canada goose, nike huarache, beats headphones, insanity workout, canada goose outlet, new balance outlet, ugg soldes, ferragamo shoes, uggs outlet, soccer jerseys, mac cosmetics, herve leger, celine handbags, wedding dresses, vans outlet, chi flat iron, bottega veneta

3:42 f.h., desember 01, 2014  
Blogger oakleyses said...

pandora charms, moncler, toms outlet, timberland shoes, ray ban, hollister clothing, swarovski uk, canada goose, montre femme, ralph lauren, converse shoes, ugg, moncler, supra shoes, pandora uk, hollister, links of london uk, swarovski jewelry, uggs canada, baseball bats, gucci, lancel, canada goose, pandora jewelry, wedding dress, juicy couture outlet, moncler, hollister canada, thomas sabo uk, canada goose, iphone 6 case, coach outlet, replica watches, oakley, canada goose pas cher, parajumpers outlet, louboutin, moncler, moncler outlet, air max, karen millen, converse, vans, moncler, moncler outlet, louis vuitton canada, juicy couture outlet, nike air max

3:53 f.h., desember 01, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home