mánudagur, febrúar 21, 2005

Mbl.is segir:

Kjötmeti sagt skipta sköpum varðandi þroska barna
Bandarískur vísindamaður segir siðlaust að gefa börnum einungis grænmetisfæði þar sem það geti dregið úr vexti þeirra og þroska. Þá segir hún það geta haft langvarandi áhrif á þroska barna neyti mæður þeirra einungis grænmetisfæðis á meðgöngunni. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. "Það hefur verið sýnt fram á það í rannsóknum að mæður sem forðast allt kjöt á meðgöngu eignast lítil börn sem vaxa hægt og eru sein til þroska," segir Lindsay Allen, sem starfar hjá bandarísku Landbúnaðarrannsóknarstofnuninni.

Er það ekki nokkuð ljóst að homo sapiens er kjötæta sem líka hefur gott af því að borða grænmeti? Mikið væri gaman að fá langt og strangt rifrildi um þetta í kommentakerfinu þar sem ég er í hlutverki áhorfandans.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Svona kannanir gera nú varla annað en að gefa vísbendingar. Þeir sem eru grænmetisætur gætu einfaldlega haft tilhneigingu til að borða ekki rétt. Ég veit ekki betur en að öll nauðsynleg næringarefni megi fá án kjöts en það virðist sem grænmetisætur þurfi að vanda sig meira við það.

Þannig að það að borða ekki kjöt er kannski ekki slæmt heldur það að borða vitlaust. Þetta er alltént spurning sem mætti spyrja sig...

En ég er sammála því að það er vafasamt að gefa börnum sínum aldrei kjöt því það er erfitt (jafnvel ómögulegt?) að byrja að borða kjöt ef maður hefur aldrei borðað það.

AH

8:26 e.h., febrúar 21, 2005  
Blogger Gummi Erlings said...

Má einnig benda á að beinþynning er vandamál sem þekkist varla í löndum eins og Víetnam, þar sem mjólkurneysla er hverfandi en neysla á kalkríku grænmeti mikil. Þetta er hins vegar landlægt vandamál hér í N-Evrópu þar sem mikið er drukkið af mjólk.

Annars held ég (eftir því sem ég hef kynnst) að grænmetisætur séu mun meðvitaðri um hollt fæði og næringu en aðrir, því þeir þurfa að hafa meira fyrir þessu. Könnunin var gerð í Afríku, og fylgir ekki sögunni hvort fólkið þar hafði aðgang að öllum nauðsynlegum næringarefnum sem finnast í fæðu.

9:31 f.h., febrúar 22, 2005  
Blogger oakleyses said...

red bottom shoes, michael kors outlet online, true religion, tiffany and co jewelry, nike air max, oakley sunglasses, ray ban outlet, tory burch outlet online, tiffany jewelry, michael kors outlet, louis vuitton, nike outlet, oakley vault, kate spade outlet online, prada handbags, nike free, longchamp outlet, ray ban sunglasses, nike air max, coach outlet store online, burberry outlet online, christian louboutin, coach outlet, christian louboutin shoes, christian louboutin outlet, louis vuitton handbags, michael kors outlet store, michael kors outlet online, polo ralph lauren, cheap oakley sunglasses, chanel handbags, coach purses, coach outlet, prada outlet, kate spade outlet, polo ralph lauren outlet, burberry outlet online, longchamp handbags, true religion outlet, louis vuitton outlet online, gucci handbags, jordan shoes, longchamp outlet online, michael kors handbags, louis vuitton outlet, michael kors outlet online, louis vuitton outlet

1:53 f.h., nóvember 29, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home