Heldur betur háskóla
Djöfull er Townshend flottur þegar hann stekkur hátt upp í loft með gítarinn í höndunum (hann er ekki að brjóta hann, hann er að spila, kominn yfir þrítugt, dálítið þroskaður). Þetta eru myndir í bæklingnum sem fylgir Who are you. Ég er alltaf að hlusta á The Who núna, átti þá alltaf eftir.
23 Comments:
já, hann er flottur kallinn.
en það var svo mikill hamagangur í þér í gær að taka þurfti bloggserverinn niður í gærkv.
Ég er ekki svo viss. Tónlistin sem Ágúst hlustar á virðist oftast samin af grunuðum barnaníðingum í glitterfötum. Þessar tónlistarfyrirmyndir hans enduðu æfina á að keyra fullar á Rolls Royce bílnum sínum út í sundlaugina heima hjá sér og drukkna. Kannski Ágúst æfi sig á að spila rafmagnsgítar með tönnunum með Bjarna Fel. á bongótrommur?
Bjarni fel stóð sig allavega vel sem rappari í Áramótaskaupinu. Var eins og dansandi bænabeða blog.central.is/kristjon
joy division er besta bandið!
tinnbert.
Townshend er engin barnaníðingur. Og ekki hlusta ég á Michael Jackson. Ég er svo gamaldags að Joy Division eru aðeins og nýmóðins fyrir mig. Minna mig samt á troðfullt diskótek og dansandi stelpur með litað hár, "out of my league".
Ég sé að íslenska krónan hefur styrkt sig gagnvart dollar og evru eftir þessu síðustu ummæli meistarans. Maður getur rétt ímyndað sér afleiðingarnar eftir bloggfærslu með fyrirsögninni - Lauslátur offitusjúklingur diggar ekki diskó -
byrjaðu þá að hlusta núna og hættu þessari dramatík um stelpur með litað hár. joy division mun breyta lífi þínu! sannaðu til!!!
tinnbert.
Það er ekki fjarri því að manni finnist meistarinn þurfa svolítið tónlistaruppeldi. Who eru vissulega miklir snillingar, um það verður ekki deilt og hverjum manni og meistara hollt að hlusta á þá. En ég held að Meistarinn rugli hér saman Joy Division og afsprengi þeirrar eðalsveitar, New Order, sem varð til í kjölfar þess að Ian Curtis brá jarðarfararbindinu um háls sér. Ekki það, New Order er líka fantafínt band - og gæti gagnast vel í hinni eilífu baráttu meistarans við hin svokölluðu aukakíló er hann nær ekki að stilla sig að dilla sér í takt við tónana þeirra. En Joy Division er bare en helt anden sag. Meistaraverkið "Closer" er t.d. rakin inspírasjón í þrumusögu úr gráum hvunndegi meðalmennisins. Jafnvel heilt smásagnasafn úr svargráum hvunndegi undimálsfólksins. Ég vara þig við, meistari, hún krefst svolítillar þolinmæði rétt í upphafi, þarf 3 - 4 hlustanir til að "ná" óvönum hlustendum - en það þykir þér nú bara betra, man ég það ekki rétt? Og ég vara þig líka við því, að ef þú tekur þeirri áskorun tinnberts - og hérmeð minni - að leggja hlustir við söng Gleðideildarinnar, þá verður ekki aftur snúið. Þú verður aldrei aftur sami Gústinn, en vonandi enn meiri meistari.
Annars er minn meistari í tónlist umfram allt Frank Zappa. Who er til skemmtunar og upplyftingar.
frábært að einhver hér sé sammála "barninu"... ég myndi hins vegar mæla með substance með joy division, það er ein besta plata sem gerð hefur verið!
tinnbert barn.
Zappa er auðvitað brilljant maður líka, engin spurning með það. Joy Division er hinsvegar tæplega til skemmtunar, og alls ekki til upplyftingar. Frekar þvert á móti ef eitthvað er. En vel til íhugunar fallin og andagiftar. Hvort Substance eða Closer verður fyrir valinu - til að byrja með - má hinsvegar einu gilda, þarna er eintóm snilld á ferðinni. Og gústi minn, þetta kom út í kringum '80, svo ekki er nú um neitt nýmeti að ræða - þetta er klassík.
Þetta er tekið til vandlegrar íhugunar.
Hefur þú séð Live at the Isle of Wight Festival 1970 með Who?
Er til í Laugarásvídeó.
Kannski betra að Bjarni Fel sé að heiman ef þú leigir hana.
Gúm.
Ég í Laugarásvídeó. Býð Bjarna Fel. að horfa með mér.
Ætli það væri ekki of stórt stökk fyrir Ágúst að fara úr drykkjulátum og mistækum menningarsinnisma the Who yfir í þunglyndi Joy Division?
Ég mæli með Roxy Music, allt sem þessar tvær hljómsveitir gerðu, gerðu Ferry og félagar betur á einhverjum tímapunkti ferilsins. Hvort sem það er ljóðrænt, glam, 80's ballöður, kover, stíl, hljóðfæraleik eða orginalíteti.
Roxy Music, ein fjölhæfasta og áhrifaríkasta hljómsveit í sögunnar. Það kæmi mér ekki á óvart þó þeir, sérstaklega Ferry, hafi haft nokkur áhrif á heittelskaða Divine Comedy Ágústs.
Ég kláraði Roxy Music um tvítugt, finnst mér. En þeir voru góðir.
En sú nauð að verðað eldast.
Held ég láti það í friði.
Hvað ertu gamall?
23.
Nógu gamall til að vera hræddur, en of ungur til að mega. Við að verða leppalúði, eða eitthvað slíkt þá, ekki dauðann per se.
Ég skil þig alveg. Það er bara heilbrigt að geta ekki hugsað sér annað aldursskeið en maður er á. Ekki vildi ég vera 23 ára.
red bottom shoes, michael kors outlet online, true religion, tiffany and co jewelry, nike air max, oakley sunglasses, ray ban outlet, tory burch outlet online, tiffany jewelry, michael kors outlet, louis vuitton, nike outlet, oakley vault, kate spade outlet online, prada handbags, nike free, longchamp outlet, ray ban sunglasses, nike air max, coach outlet store online, burberry outlet online, christian louboutin, coach outlet, christian louboutin shoes, christian louboutin outlet, louis vuitton handbags, michael kors outlet store, michael kors outlet online, polo ralph lauren, cheap oakley sunglasses, chanel handbags, coach purses, coach outlet, prada outlet, kate spade outlet, polo ralph lauren outlet, burberry outlet online, longchamp handbags, true religion outlet, louis vuitton outlet online, gucci handbags, jordan shoes, longchamp outlet online, michael kors handbags, louis vuitton outlet, michael kors outlet online, louis vuitton outlet
uggs canada, louis vuitton canada, wedding dress, moncler outlet, vans, toms outlet, moncler, oakley, moncler, coach outlet, lancel, moncler, supra shoes, hollister clothing, pandora uk, montre femme, ray ban, ralph lauren, canada goose, canada goose, pandora charms, pandora jewelry, juicy couture outlet, parajumpers outlet, baseball bats, iphone 6 case, thomas sabo uk, canada goose pas cher, hollister, juicy couture outlet, converse, ugg, converse shoes, replica watches, moncler, canada goose, air max, nike air max, gucci, links of london uk, moncler outlet, louboutin, swarovski jewelry, swarovski uk, moncler, timberland shoes, hollister canada, karen millen
qzz0424
chicago bulls
texans jerseys
polo ralph lauren outlet
rayban sunglasses
nike shoes
coach outlet store online
michael kors outlet
air jordan shoes
oakley sunglasses
coach outlet online
Skrifa ummæli
<< Home