mánudagur, maí 08, 2006

Fyrir stuttu lýsti ég því tákni um sumarkomuna að ég hefði fjarlægt upprennda fóðrið úr svörtu úlpunni minni. Mér var kalt í marga daga á eftir. En í dag ( í gær? klukkan er eitt að nóttu) þreifaði ég eftir úlpunni á stólbaki á Súfistanum en greip í tómt. Gleymdi því eitt augnablik að ég hafði ekki farið í hana, ég var bara í jakkafötunum og yfirhafnarlaus. Þannig að það er víst komið sumar, ekki bara úlpufóðurlaust vor heldur úlpulaust sumar. - Þetta er jafnvel hversdagslegra en sultur í München.

5 Comments:

Blogger Magnús said...

Ég er ansi hræddur um að "týndi af sér spjarirnar" standist ekki kröfur um góðan texta.

1:06 e.h., maí 08, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Það er stafsetningarvilla í þessu en hún hefur ekkert með stíl að gera. "Tína af sér spjarirnar" er góð og gild íslenska og á ágætlega við þarna.

1:52 e.h., maí 08, 2006  
Blogger Magnús said...

Auðvitað var ég bara að benda á stafsetningarvilluna, en ekki hvað?

4:13 e.h., maí 08, 2006  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Það skiptir ekki máli, en nei, ég var ekki með á hreinu að þú værir að benda á stafsetningarvilluna. En takk samt, ég hefði ekki tekið eftir henni annars.

4:25 e.h., maí 08, 2006  
Blogger oakleyses said...

p90x workout, asics shoes, reebok shoes, canada goose outlet, instyler ionic styler, longchamp, north face jackets, uggs on sale, giuseppe zanotti, hollister, abercrombie and fitch, mont blanc pens, babyliss, lululemon outlet, marc jacobs outlet, north face jackets, canada goose outlet, mcm handbags, nike trainers, ugg outlet, ugg, ugg boots, nike roshe, replica watches, ghd, valentino shoes, uggs outlet, birkin bag, nfl jerseys, jimmy choo shoes, soccer shoes, ugg boots, canada goose, nike huarache, beats headphones, insanity workout, canada goose outlet, new balance outlet, ugg soldes, ferragamo shoes, uggs outlet, soccer jerseys, mac cosmetics, herve leger, celine handbags, wedding dresses, vans outlet, chi flat iron, bottega veneta

1:56 f.h., desember 01, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home