föstudagur, ágúst 19, 2005

Er markaður fyrir Who-tónleika á Íslandi? Þeir plana risatónleikaferð á næsta ári og Reykjavík er orðinn heitur tónleikastaður. Er grundvöllur fyrir Who-tónleikum hérna? Aðeins 1500 sáu Alice Cooper.

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu, segist þú ekki vera Who-aðdáandi? Hvernig í veröldinni dettur þér í hug að bera þetta saman, Who og Alice Cooper?
Það komu nú ekki nema 1500 - 2000 manns að sjá Elton John á Laugardalsvellinum, ætli sé ekki bara best að leigja NASA undir Stones...?
Nei ég segi nú bara svona.
Who fyllir Egilshöllina. Léttilega

3:14 f.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Það verður að taka með í reikninginn að markaðurinn er orðinn ansi mettaður. Allt of mikið búið að vera í gangi undanfarið. Þess vegna held ég að Alice Cooper hafi floppað. En ég hef samt fulla trú á að Who myndi vegna vel hér á landi...

10:11 f.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

En hvað með Michael Jackson, eru ekki hann og Pete Townsend kollegar?

11:13 f.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Michael Jackson var sýknaður.
Pete Townsend líka. (Fór það annars fyrir rétt? Hvað sem öðru líður held ég að það hafi þótt sýnt að hann væri saklaus)

Ég held að bæði séu þessi mál stórlega orðum aukin.

11:25 f.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Er ekki hægt að flytja Jacko hingað?

11:54 f.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig væri það?

Í fullri alvöru á ég erfitt með að ímynda mér að Michael Jackson komi nokkurn tíma aftur fram opinberlega sem tónlistarmaður.
mér gæti vitaskuld skjátlast...

12:21 e.h., ágúst 19, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Auðvitað legg ég ekki Who og Alice Cooper að jöfnu nema það að mér hefur aldrei virst Who vinsælir á Íslandi. Kannski er það vitleysa.

12:31 e.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir að Who eiga töluvert fleiri aðdáendur en Alice Cooper.

1:04 e.h., ágúst 19, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Mjög líklegt að menn nenni að sjá the Who hérna. Nema kannski á Gauknum.

5:25 e.h., ágúst 19, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Já, það er nú einmitt þetta sem mig grunar. Og ekki fara The Who að spila á Gauknum því þeir geta án efa víða fyllt hallir. Þannig að við sjáum þá bara á erlendri grundu.

5:29 e.h., ágúst 19, 2005  
Blogger oakleyses said...

uggs canada, louis vuitton canada, wedding dress, moncler outlet, vans, toms outlet, moncler, oakley, moncler, coach outlet, lancel, moncler, supra shoes, hollister clothing, pandora uk, montre femme, ray ban, ralph lauren, canada goose, canada goose, pandora charms, pandora jewelry, juicy couture outlet, parajumpers outlet, baseball bats, iphone 6 case, thomas sabo uk, canada goose pas cher, hollister, juicy couture outlet, converse, ugg, converse shoes, replica watches, moncler, canada goose, air max, nike air max, gucci, links of london uk, moncler outlet, louboutin, swarovski jewelry, swarovski uk, moncler, timberland shoes, hollister canada, karen millen

3:07 f.h., nóvember 29, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home