fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Ég kíkti aðeins á Mokka í gærkvöld og það voru bara ungir krakkar þar. Guðný afgreiddi mig og ég spurði hana hvort þetta hefði líka verið svona þegar ég var ungur og hún sagði að það hefði oft verið þannig. Okkur þótti nokkuð merkilegt að nýjar kynslóðir fylltu staðinn þar sem nú væri svo miklu meira af lókölum í boði en þegar ég var að þvælast þarna upp úr 1980. Krakkarnir voru allir sætir og viðkunnanlegir. Menntaskólaleg í klæðaburði. Einn var með fartölvu. Það var eina breytingin frá því í gamla daga.

Hvað var Guðný á Mokka annars gömul þegar ég var menntaskólaunglingur? Fimmtug?

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það eru bara krakkar sem hafa tíma til að "hanga" á kaffihúsum, interneti, yfir sjónvarpi. Fullorðið fólk er komið upp á lag við að nýta tímann í eitthvað sem veitir því ánægju. Krakkarnir eru að leita og læra.

2:26 e.h., ágúst 04, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

"Fullorðið fólk er komið upp á lag við að nýta tímann í eitthvað sem veitir því ánægju"
Vinna fyrir skuldum!

2:34 e.h., ágúst 04, 2005  
Blogger Ágúst Borgþór said...

Já, smíða sólpalla og horfa á Formúluna. Verst að geta ekki fullorðnast.

3:05 e.h., ágúst 04, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Þegar ég var í menntaskóla (MR) héngum við alveg lon og don á Mokka.

Á Mokka hélt til hópur sí- eða dagdrykkjumanna á þessum árum. Þeir voru með flöskur eða pela í brúnum bréfpoka inná sér. Málið stóð þá um það að kaupa kaffi eða gos öðru hvoru yfir daginn og styrkja veigarnar með brennivíni undir borði og þegar Guðný sneri baki í kúnnana. Drykkjumenn voru aldrei reknir út nema þeir væru með uppsteit.

Þetta var auðvitað áður en bjórinn var leyfður. Stétt dagdrykkjumanna hvarf alfarið af Mokka þegar krárnar komu til sögunnar.

Að öðru leyti finnst mér Mokka vera mjög svipað og það var þegar ég var í menntaskóla. Nema nú eru færri listamenn og skáld viðloðandi. Þessi stétt manna dreifðist líka þegar kaffihúsum fjölgaði.

- Sólbráð

3:13 e.h., ágúst 04, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Eini listamaðurinn sem hefur hangið á Mokka var Leifur Haraldsson, sá sem þýddi "Stríð og frið" úr dönsku. Hitt voru allt gervilistamenn. Raunverulegir listamenn hafa ekki tíma til að hanga á kaffihúsum. Þeir sem gera það verða eins og Gunnar Dal.

3:23 e.h., ágúst 04, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er kallað "Pétur Pan heilkenni" þegar menn geta ekki eða vilja ekki fullorðnast.

3:25 e.h., ágúst 04, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Maður spyr ekki konu á mínum aldri um aldur, væni minn.

4:01 e.h., ágúst 04, 2005  
Blogger oakleyses said...

red bottom shoes, michael kors outlet online, true religion, tiffany and co jewelry, nike air max, oakley sunglasses, ray ban outlet, tory burch outlet online, tiffany jewelry, michael kors outlet, louis vuitton, nike outlet, oakley vault, kate spade outlet online, prada handbags, nike free, longchamp outlet, ray ban sunglasses, nike air max, coach outlet store online, burberry outlet online, christian louboutin, coach outlet, christian louboutin shoes, christian louboutin outlet, louis vuitton handbags, michael kors outlet store, michael kors outlet online, polo ralph lauren, cheap oakley sunglasses, chanel handbags, coach purses, coach outlet, prada outlet, kate spade outlet, polo ralph lauren outlet, burberry outlet online, longchamp handbags, true religion outlet, louis vuitton outlet online, gucci handbags, jordan shoes, longchamp outlet online, michael kors handbags, louis vuitton outlet, michael kors outlet online, louis vuitton outlet

2:54 f.h., nóvember 29, 2014  
Blogger oakleyses said...

birkin bag, ferragamo shoes, ugg, reebok shoes, asics shoes, insanity workout, hollister, giuseppe zanotti, chi flat iron, soccer jerseys, herve leger, jimmy choo shoes, uggs outlet, new balance outlet, replica watches, lululemon outlet, nike huarache, north face jackets, ugg boots, p90x workout, longchamp, canada goose outlet, uggs on sale, abercrombie and fitch, beats headphones, wedding dresses, vans outlet, valentino shoes, mac cosmetics, canada goose outlet, canada goose, uggs outlet, celine handbags, soccer shoes, nike roshe, mcm handbags, marc jacobs outlet, bottega veneta, mont blanc pens, ugg outlet, canada goose outlet, nfl jerseys, ugg soldes, babyliss pro, ghd, nike trainers, north face outlet, ugg boots, instyler ionic styler

3:01 f.h., nóvember 29, 2014  
Blogger oakleyses said...

uggs canada, louis vuitton canada, wedding dress, moncler outlet, vans, toms outlet, moncler, oakley, moncler, coach outlet, lancel, moncler, supra shoes, hollister clothing, pandora uk, montre femme, ray ban, ralph lauren, canada goose, canada goose, pandora charms, pandora jewelry, juicy couture outlet, parajumpers outlet, baseball bats, iphone 6 case, thomas sabo uk, canada goose pas cher, hollister, juicy couture outlet, converse, ugg, converse shoes, replica watches, moncler, canada goose, air max, nike air max, gucci, links of london uk, moncler outlet, louboutin, swarovski jewelry, swarovski uk, moncler, timberland shoes, hollister canada, karen millen

3:06 f.h., nóvember 29, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home