mánudagur, ágúst 22, 2005

Ég vaknaði klukkan fjögur í nótt og úðaði í mig eins og fífl einni og hálfri skál af dísætu og baneitruðu múslí. Nokkur hundruð grömm af kolvetnum þar og ljóst að undirvitundin hefur ekki þolað velgengni helgarinnar. Ég brást við þessu með því að borða ekkert fyrr en um hádegi, en þá var ofnbakaður fiskur. Síðdegis fékk ég mér ávexti og í kvöldmatinn hrærði mér síðan fjögur egg á meðan liðið át pizzu í Gígaviku Dómínós. Þetta ætti því að sleppa. Ég þarf að passa mig rosalega á nóttunni, því ég get vaknað upp sem gamla átvaglið, spurning um að tala við sjálfan sig fyrir svefninn.

Ég hjólaði í Neslaugina fyrir kvöldmat og synti 800 metra sem er ekki mikið en ég finn að bringusvamlið er gott fyrir handleggina. Ef ég nenni ekki að lyfta þá verð ég að synda. Svo ætla ég að skokka aftur á morgun, líklega 7 kílómetra. Síðan er ég alltaf á hjólinu og er búinn að þeytast fram og aftur á því í dag: vinna, Melaskóli, vinna aftur, Hlemmur, vinna, Seltjarnarnes, heim, vinna. Það munar um það.

Þannig að ég er algjörlega óþolandi og mér líður frábærlega. En ég verð að vaka yfir græðgispúkanum sem getur eyðilagt allt.

Ef það verður hálka, kuldi og snjór í vetur enda ég á því að skrá mig á einhverja stöðina og fá leiðsögn í að lyfta lóðum. Skokka síðan á hlaupabrautum. - Hreyfifíknin er vakin og það verður ekki aftur snúið.

2 Comments:

Blogger oakleyses said...

red bottom shoes, michael kors outlet online, true religion, tiffany and co jewelry, nike air max, oakley sunglasses, ray ban outlet, tory burch outlet online, tiffany jewelry, michael kors outlet, louis vuitton, nike outlet, oakley vault, kate spade outlet online, prada handbags, nike free, longchamp outlet, ray ban sunglasses, nike air max, coach outlet store online, burberry outlet online, christian louboutin, coach outlet, christian louboutin shoes, christian louboutin outlet, louis vuitton handbags, michael kors outlet store, michael kors outlet online, polo ralph lauren, cheap oakley sunglasses, chanel handbags, coach purses, coach outlet, prada outlet, kate spade outlet, polo ralph lauren outlet, burberry outlet online, longchamp handbags, true religion outlet, louis vuitton outlet online, gucci handbags, jordan shoes, longchamp outlet online, michael kors handbags, louis vuitton outlet, michael kors outlet online, louis vuitton outlet

2:49 f.h., nóvember 29, 2014  
Blogger oakleyses said...

uggs canada, louis vuitton canada, wedding dress, moncler outlet, vans, toms outlet, moncler, oakley, moncler, coach outlet, lancel, moncler, supra shoes, hollister clothing, pandora uk, montre femme, ray ban, ralph lauren, canada goose, canada goose, pandora charms, pandora jewelry, juicy couture outlet, parajumpers outlet, baseball bats, iphone 6 case, thomas sabo uk, canada goose pas cher, hollister, juicy couture outlet, converse, ugg, converse shoes, replica watches, moncler, canada goose, air max, nike air max, gucci, links of london uk, moncler outlet, louboutin, swarovski jewelry, swarovski uk, moncler, timberland shoes, hollister canada, karen millen

3:09 f.h., nóvember 29, 2014  

Skrifa ummæli

<< Home